DON'T YOU FORGET ABOUT ME

Tveggja tíma skammsýning í bílastæðakjallara gamla Kolaportsins, unnin ásamt Ásgerði Birnu Björnsdóttir. Hljóð og skúlptúr innsetning í 5 bílum og 5 niðurföllum. Reykjavík, 2016.

Sverð af Skeiðarársandi og snjallsími eyða tíma saman í bakpoka. Bein hittir batterí og flytur til borgarinnar og nú á öll þjóðin það saman. Á rúntinum dúkkar upp gamalt og gleymt lag, hver syngur það nú aftur? Hver átti aftur sverð árið 1000?

Kolaportið var einu sinni í bílakjallara, svo var stemningunni tappað á flösku og hún flutt hinumegin við götuna. Nú er þessi bílakjallari tímahrúga sem liggur milli laga. Steypa, aska, seðlar, gömul frönsk kartafla.